Skotfélag Ólafsfjarðar

Skotfélag Ólafsfjarðar

Sportvík

Skotfélag Ólafsfjarðar

Ný heimasíða er kominn í loftið

www.skotolo.is 

Fréttir

Innisvæðið

Opið á mánudögum og fimmtudögum kl 19.30 svo má hringja um helgar í þá sem hafa lykkla ef menn langar að skreppa og ath hvort þeir eru til í að opna.

Rögnvald 896-2474
Ingimund 892-2202
Óskar893-5567

Skotíþróttamaður ársins 2019

Rögnvaldur Jónsson var kosinn skotíþróttamaður ársins hjá félaginu, hann hefur stundað bæði leirdúfu og riffilmót í sumar og haust og þá bæði innanfélags sem utan má þar nefna í Reykjavík Akureyri og Húsavík.
Hann hefur einnig unnið ötull að uppiggingu félagsins og er í stjórn þess.

Innsvæði tilbúið

Nú eru við komnir með innivæði aftur eftir 18 ár, í kjallara MTR. 
Æfingar geta nú farið að byrja og óskum við eftir tillögum að opnunartíma, til dæmis tvö kvöld í viku svo dæmi sé tekið. 
Brautin er 25 Metrar fyrir 22 Cal byssur og loftbyssur á 10 Metrum.
Skotborð fyrir Vinstri og Hægri skyttur.
Skot seld á staðnum 900 krónur pakkinn fyrir félagsmenn.
Félagsriffill fæst lánaður.



Fjöldi félagsmanna

Nú eru skráðir félagsmenn orðnir 110 í félaginu og er það alveg frábært, enda árgjaldið ekki nema 6.000kr
Við viljum fá sem flesta inní félagið því fleiri því betra og sameinaðir getum við framkvæmt meira.
Í sumar komum við upp öðrum 5 palla skotvelli og gerðum 200M færi á skotsvæðinu við múlagöng.

Nú erum við að byrja að vinna í kjallara Menntaskólans á Tröllaskaga en þar ætlum við að skjóta með Loftbyssum og 22calibera byssum á veturna og vonumst við að fá fólk til að koma og prufa þegar aðstaðan verður orðin viðunandi.

Óskar Gísla og Ingimundur Sigurðs eru umsjónarmenn innisvæðis og er hægt að fá nánari upplýsingar hjá þeim.


Hlað
skó
Brimnes hotel

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning